![]() |
|
|
#1 |
|
Administrator
Skráningardagur: Jul 2009
Location: Stångby, Lund
Innlegg: 264
|
Nú sendum við í loftið Landsmótslagið 2010 sem samið var í þessu frábæra tilefni, endilega skellið linknum á heimasíður ykkar, spilið sem oftast njótið vel og komið ykkur í stemminguna.
- Einnig viljum við kynna happadrættið sem er nýjung á Landsmóti. Tækifæri fyrir þá sem ekki eiga hjól að koma á Landsmót og hjóla heim á nýskoðuðu Suzuki GS 750, tækifæri fyrir þá sem liggja í gólfinu að gera við hjólið sitt að vinna hjólalyftu, tækifæri fyrir þá sem eru þreyttir á eyrnaflapsinu á 90km/klst að vinna glæsilegan hjálm frá Nítró, tækifæri fyrir þá sem eiga bara dúnúlpu til að hjóla í að vinna glæsilegan leðurjakka frá Borgarhjól, , tækifæri fyrir þá sem gleyma ljósunum á alla helgina að vinna rafgeymi.....ofl. ofl. ...... Miðinn kostar litlar 1.000kr Mynd af hjólinu er hér fyrir neðan - Landsmótsmerkin í ár verða seld sér á litlar 1.000kr. ALLUR ÁGÓÐI af merkjasölunni rennur til Mótorhjólasafnsins svo það er um að gera að slá tvær flugur þar! - Fyrir þá sem vilja koma farangri sínum á mótið er bent á að mæta í húsnæði Óskabarna að Kaplahrauni 18 Hfj. milli 20:00 og 22:00 þriðjudaginn 29.júní - Vinna í gæslu = frímiði. fyrir þá sem hafa áhuga á að spara sér pening þá er sami díll og undanfarin ár, vinnið tvær 6 tíma vaktir og fáið miðann endurgreiddan. Þeir sem vilja taka þennan díl er bent á að skrá sig á landsmot2010@visir.is eða hjá Önnu í síma 893-1130 - Að lokum viljum við minna á að það verður auðveldlega hægt að múta dómnefndinni sem velur flottustu tjaldbúðirnar ........ með voðaveigum og öðrum veitingum )Ítrekaðar kveðjur! Óskabörn Óðins MC
__________________
Kv. Halli |
|
|
|
![]() |
| Thread Tools | |
| Display Modes | |
|
|